Ég trúi á listina og framgang hennar í heiminum sem afl til að gera lífið og umhverfið betra.

Jón Gunnar Árnason í viðtali í Morgunblaðinu, 4. desember 1988.

 

Myndhöggvarafélagið í Reykjavík á rætur sínar í svonefndum Útisýningum á Skólavörðuholti á sjöunda áratugnum, en var formlega stofnað 1972. Félagið hefur löngum verið virkt í sýningarhaldi bæði innan dyra sem utan, í Reykjavík en einnig úti á landi og m.a. verið þáttakandi í Listahátíð í Reykjavík og Reykjavík Menningarborg Evrópu árið 2000. Félagið hefur átt frumkvæði að sýningunum List um landið, Strandlengjan I og II, Firma ´99 auk fjölda annarra útisýninga víða um land og erlendis.

Helstu verkefni félagsins, utan sýningarhalds, hafa snúið að vinnuaðstöðu og starfsskilyrðum myndhöggvara. Fyrstu tvo áratugina var félagið með aðstöðu á Korpúlfsstöðum og byggði þar upp öflugt starf sem setti mikið svipmót á myndlistarlífið í landinu. Árið 1993 gerði félagið leigusamning við Reykjavíkurborg um afnot af Nýlendugötu 15 og rekur þar verkstæði og vinnustofur. Þessi samningur var nýlega endurnýjaður.

 

Nýlendugötu 15
101 Reykjavík

Pósthólf 1348
121 Reykjavík

Sími 562 4887

Frá formanni
Pósthólf