Inntökuskilyrði MHR

Umsækjandi skal uppfylla fjögur af neðangreindum skilyrðum.

  1. Hafa lokið minnst 4ra ára námi frá viðurkenndum listaskóla, samkvæmt yfirlýsingu viðkomandi skóla.
  2. Að hafa starfað alvarlega að listsköpun í minnst 2 ára að námi loknu eða stundað framhaldsnám jafn lengi.
  3. Hafa tekið þátt í alþjóðlegri sýningu, samsýningu styrktri af opinberum aðilum eða ekki færri en fimm samsýningum öðrum en að ofan greinir.
  4. Hafa haldið eina eða fleiri einkasýningar í viðurkenndum sýningarsölum eða viðurkenda sýningu á opnu svæði .
  5. Hafa verið falið af dómnefnd að vinna að listskreytingu á opinberum vettvangi.
  6. Eiga minnst eitt verk í opinberri eigu, keypt af viðkomandi safnráði eða matsnefnd
  7. Hafa hlotið opinberan styrk eða starfslaun.
  8. Leggja má fram upplýsingar um aðra listræna starfssemi en um getur í ofangreindum liðum.

Sækja skal um skriflega fyrir 15 mars eða eigi síðar en 30 dögum fyrir aðalfund MHR. Meiri hluti aðalfundar ræður úrslitum um meðferð umsóknar.

Félagar í Myndhöggvarafélaginu í Reykjavík gerast EKKI sjálfkrafa félagar í SÍM (Sambandi íslenskra Myndlistarmanna), en þeim er frjálst að velja.

Nýlendugötu 15
101 Reykjavík

Pósthólf 1348
121 Reykjavík

Sími 562 4887

Félagar
Umsókn um félagsaðild
Pósthólf